Isl Ens Nor
Ný skilaboð

Gestabók

Ens View guestbook in english
Leifur Helgason 01/01/2011, kl.20:05
Kæru fjölskyldur að Þorvaldseyri - Mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Megi nýtt ár færa ykkur gleði - heilbrigði og farsæld. Þakka góð kynni á liðnu ári. Hátíðarkveðjur Leifur Helgason
Haukur Ingvarsson 31/12/2010, kl.20:11
Fjölskyldurnar Thorvaldseyri. Hatiðarkveðjur með osk um gæfu og gengi a nyju ari. Innilegar thakkir fyrir goða viðkynningu og goðan aðbunað i haust meðan eg dvaldi hja ykkur. Kærar kveðjur, H. Ingv.
Stefanía H. Sigurðardóttir 27/11/2010, kl.22:37
Ágætu hjón, Guðný og Ólafur þakka ykkur fyrir að taka svo vel á móti vinum okkar frá Noregi, Dagfinn og Klöru í dag 27.10.2010. Þau hafa svo oft komið hingað en ekki náð að sjá eldgos enn en dagurinn hjá ykkur var og verður þeim ógleymanlegur. Kærar þakkir fyrir gestrisnina, kynninguna og móttökurnar.
Ólafur og Guðný Þorvaldseyri 06/11/2010, kl.22:26
Góðu hjón ! Gaman að skoða síðuna ykkar. Fór hér inn til að fiska uppskriftir og varð vel ágengt, en hér á bæ vorum við að mala smávegis heimaræktað bygg og vantaði hugmyndir af brauði. Ætli hafi verið malað slíkt bygg hér síðan á dögum Víga-Glúms? Gangi ykkur allt í haginn! Vala og Gunnar Rifkelsstöðum
Elínborg Birna Sturlaugsdóttir 24/10/2010, kl.12:51
Sæl kæru hjón. Falleg heimasíða hjá ykkur sem ég á eftir að kíkja reglulega á. Mig langar að hrósa brauðinu sem bakað er úr korninu ykkar - mjög gott og góð tilfinning að borða brauð úr úrvals íslensku hráefni. Bið sérstaklega að heilsa gamalli skólasystur minni - Guðnýju Valberg sem ég vissi ekki að væri húsfreyja á Þorvaldseyri fyrr en gosið hófst í Eyjafjallajökli. Gangi ykkur allt í haginn. Kveðja, Elínborg
Regína Hrönn Ragnarsdóttir 24/09/2010, kl.17:27
Ég keyrði þarna fram hjá um daginn og stoppaði við Þorvaldseyri. Yndislegt að sjá hvað uppbyggingarstarfið hefur skilað miklu og að uppskeran er mikil. Og gaman að því að hafa ker með ösku við hliðið. Ég heyrði af þessu keri hjá írskum ferðamönnum sem ég hitti í Ásbyrgi og fannst þeim mikið til koma að sjá öskuna. Til hamingju með heimasíðuna og gangi ykkur allt í haginn.
Bjarni Ólafsson 26/08/2010, kl.19:41
Var að skoða myndirnar frá flóðinu í Svalbælisá, þetta hafa verið enn aðrar náttúruhamfarirnar þarna. Gott að sjá öflugar vinnuvélar (líkl. frá Suðurverki) vera að byggja upp og efla varnargarðana :)
HELGA 19/07/2010, kl.10:32
Ísland er fallegasta búðum í heiminum. Kraftar náttúrunnar til þess að hjálpa sterkur og refsa veiku! bæ þinn mun vera fyrirmynd fyrir marga. Og boðskapur þinn verður styrktist um móður náttúru! Kveðja
Thomas Cottis og Kjersti Hoff 14/07/2010, kl.11:51
Tusen takk for opplevelsesrik dag hos dere! Vi er mektig imponert over pågangsmot og kreativitet! Vi er nå hjemme i Norge, etter 2 meget innholdsrike og spennende uker på Island! Vi følger med dere framover på nettsida!!
Aðalgeir Arason 05/07/2010, kl.23:45
Síðbúin kveðja með aðdáun á einstakri heimasíðu og þeirri fallegu uppbyggingu og sköpunargleði sem skín í gegn um allt hjá ykkur.

Ný skilaboð

Nafn:

Skilaboð:

tveir plús fimm =

Rusl sía