Aðalgeir Arason 05/07/2010, kl.23:45
Síðbúin kveðja með aðdáun á einstakri heimasíðu og þeirri fallegu uppbyggingu og sköpunargleði sem skín í gegn um allt hjá ykkur.
Eyjólfur K Kolbeins 30/06/2010, kl.23:39
Vorum á tjaldstæðinu á Seljavöllum fyrir nokkrum árum, það er ekki langt frá ykkur. Komum þar í síðustu viku að skoða . Það er ekki hægt að lýsa þessu með orðum hvernig allt lítur út.
Því líkt æðruleysi og hógværð í íbúum á svæðinu.Þið eruð hetjurnar og vælið ekki. Frábær síða og fróðlegt að fylgjast með.
Hulda Valný 30/06/2010, kl.13:52
Mig langar til að þakka ykkur, heimilisfólkinu á Þorvaldseyri, fyrir að hafa leyft mér og öðrum Íslendingum að fylgjast með og taka þátt í lífi ykkar og starfi og er þessi heimasíða einstaklega falleg og Þorvaldseyri til sóma. Ég bið guð að blessa ykkur öll og gefa ykkur áframhaldandi sköpunargleði og dásamlegt líf á einni af fallegustu jörð sem Ísland á. Kær kveðja.
Ingibjörg Valberg 29/06/2010, kl.20:15
Skemmtileg síða hjá ykkur
Gaman að fylgjast með duglegu fólki:)
Guðrún Hafsteinsdóttir 28/06/2010, kl.11:30
Til hamingju með glæsilega heimasíðu og gangi ykkur vel í uppbyggingarstörfunum á einu glæsilegasta býli landsins.
Sigurgeir og Birna Varmalandi 27/06/2010, kl.22:31
Til hamingju með góða heimasíðu og gaman að sjá að þið skulið vera farin að slá. Baráttu kveðjur úr Skagafirði
kári Ólafsson 27/06/2010, kl.01:20
Eitt glæsilegasta býli landsins þarna er á ferð dugnaðar fólk.
Gangi ykkur allt í haginn
M.Guðný Sölvadóttir 26/06/2010, kl.10:55
Mikill fróðleikur og gaman að skoða myndir. Augljóslega mikill dugnaður á þessum bæ. Gangi ykkur allt í haginn.
Jónína og Óli 25/06/2010, kl.09:20
Hamingjuóskir með heimasíðuna. Hjartans kveðjur til ykkar allra úr Furubyggðinni.
Þorgrimur Kolbeinsson 23/06/2010, kl.20:42
Megi guð geyma ykkur. Lifið heil og lengi